Já hæ, pæling hérna.
Hefur ykkur einhverntímann liðið þannig að þið vitið ekkert hvað þið eruð að gera við líf ykkar?
Undirrituðum líður þannig einmitt núna að hann hafi ekki vitað það í
mörg ár, bara einhvernveginn flotið áfram stefnulaust ef svo mætti að
orði komast.
Ég veit t.d. ekki hvort mig langi til að vera í skóla í dag en ég veit
að mig langar að klára einhverja menntun fyrir framtíðina. Ég veit að
mig langar að verða bóndi og lifa einföldu lífi í sveitinni með eigin
fjölskyldu og góðan bústofn en veit ekki hver væri tilbúin til að fórna
sér í það með mér.
En það er kannski bara spurning um tíma hvenær maður finnur þá manneskju.
Hluti af mér í dag langar að gefa skít í allt eiginlega og bara flytja
eitthvað burt til útlanda en rökhyggjan segir manni að það myndi ekki
endast lengi, kannski þarf maður bara að komast í gott og langt frí?
Vaxandi hluti af mér langar að flytja til Reykjavíkur og búa þar en það
er til komið af frekar nýlegum atburðum..

Fór suður síðustu helgi og
grunaði ekki að ein helgi gæti verið svona frábær eða hvað þá svona
fljót að líða.
En ef hlutirnir væru einfaldari þá væri það líf sem ég gæti vel hugsað
mér að kjósa og kannski er það eitthvað sem gæti gerst en allt er jú
hægt ef viljinn er fyrir hendi segja þeir.. og nóg er til af honum á
þessum bæ sama hvernig maður svo fer að því.
Lífið er jú flóknara en að smyrja brauð á morgnana ..
Takk fyrir frábæra helgi Ásta og Thelma, ykkur að þakka að núna keyrir
maður ekki aftur í mosó á leiðinni í hafnarfjörðinn.
Já ég rata ekki rass fyrir sunnan og skammast mín eilítið fyrir það
sökum þess hversu niðurlægjandi það var að að þurfa viðurkenna að hafa
keyrt tilbaka í mosó á leiðinni í hafnarfjörð .. hahah við vorum meira
að segja komnir niðrí bæ ! Hjá MR og læti og tókst að taka hring þar og
aftur á nákvæmlega sama stað, hringtorgin í mosó.
En annars var Addi við stýrið allan tímann og ætla ég að kenna honum alfarið um þetta.
Pælingu lýkur.
Almennt um helgina? Í einu orði sagt æðisleg, keyrðum suður seint á
föstudegi og vorum komnir dálítið seinna en áætlað var.. það er að
segja um það bil 4 klst seinna en áætlað var.

En á endanum tókst
að komast þangað og keyrðum við þá þessa eftirminnilegu ferð úr mosó,
niðrí bæ, aftur inní mosó og römbuðum síðan á rétta beygju í áttina að
hafnarfirði eftir korters leiðbeiningar í síma. Minnir mig eitthvað á
þegar við ætluðum suður að hitta Hauk í Reykjavík og keyrðum hálfa
leiðina í átt að Keflavík...
Þar tóku Ásta, Thelma og Birkir á móti okkur og sumir búnir með tvo bjóra...

Þar var einnig páfagaukurinn Sóley, lítil skjaldbaka og kanínan Aríel
sem var miðpunktur athyglinnar í hvert sinn sem hún hoppaði um gólfið,
allavega hjá mér og Adda sem höfum ekki séð slíkt í langan tíma.
Föstudagurinn fyrir sunnan var semsagt þannig að við keyrðum, hittum
fólkið og fórum síðan að sofa. Á laugardagsmorgunn var vaknað eldsnemma
... neeiii .. Morguninn eftir var vaknað um hálf tólf leytið og farið á
fætur, merkilegar upplýsingar það.
Eitthvað rámar mig í coco puffs í morgunmat ... hahah ég er bara fullur af svona skemmtilegum upplýsingum núna..
Eitthvað var kíkt í Hagkaup þann daginn held ég og skoðað heil ósköpin
af undirfötum og barnaleikföngum, skiptist hópurinn í tvennt eftir
kynjum á meðan því stóð og eftirlæt ég lesendum að fatta hvor hópurinn
skoðaði hvað.
Þar hittum við Heimi, sem ég er ekki ennþá alveg viss hver er en hann
þekkir Þorstein og er því eflaust alls ekki slæmur náungi. Hann var
þarna fyrir sunnan á leiðinni í fermingu með mömmu sinni og ég held
þetta hafi verið systir hans þarna líka.
Laugardagurinn fór held ég mikið í það að keyra á milli staða, aðallega
var keyrt þó í hafnarfjörð og grafarvog og svo niðrí bæ en þar skoðuðum
við hið heimsfræga Kolaport sem hefur öðlast "heimsfrægð" í mínum augum
vegna augljóss meirihluta útlendinga þar.
Var ekki stoppað þar lengi vegna kæfandi lyktar og vaxandi tölu
útlendinga í húsnæðinu en þetta var víst eitthvað sem er kallað
"pólverjalykt", stafar af því að samkvæmt öllu vituðu máli fara
pólverjar víst voðalega sjaldan í sturtu.
Talandi um pólverja.. fyrir sunnan eru þeir allsstaðar ! Þeir voru í
Hagkaup, þeir voru í Grafarvoginum, þeir voru í augljósum meirihluta í
Kolaportinu, þeir voru niðrí bæ, þeir voru á Laugaveginum og þeir voru
í Hafnarfirðinum ! Ég hef bara aldrei vitað aðra eins kássu af
útlendingum á Íslandi ... Hljómar eins og ég vilji ekki hafa þetta fólk
hérna, ég veit, og að miklu leyti er það rétt. Mér finnst ekki góð
tilhugsun að allt fyllist hér af útlensku talandi fólki sem gerir
ekkert til að aðlaga sig að okkar meninngu og siðum og síðast en ekki
síst íslenskunni.
Svo er hinn hlutinn af þessu fólki sem heillast af Íslandi fyrir hvað
það er og vill lifa "íslensku" lífi, tekur okkar siði og meninngu
alvarlega og lærir tungumálið, því fólki hef ég ekkert á móti en ..
Þetta er flókið eins og alltaf þegar maður byrjar að tala um útlendingamál.
Kolaportið já .. Eftir Kolaportið var farið að borða á American Style
og ákvað Addi að vera feitur og fá sér einn tvöfaldan borgara, við
stelpurnar ákváðum hinsvegar að passa uppá línurnar og fengum okkur
einn venjulegan.

ásamt slatta af frönskum ..
Nokkru eftir það fengu Dísa og Ómar okkur til Keflavíkur og sökum þess
hve lengi við vorum þar dóu allar okkar (mínar) vonir um að geta farið
í bíó á fílinn Horton..
En það var nokkuð algengt umræðuefni af minni hálfu þann daginn ..
Við skoðuðum þar mótorhjólið hans Ómars í nístingskuldanum að mér og
Ástu fannst og horfðum á Adda nærri því klessa á hús sem var fyrir
honum þegar hann fékk að prófa hjólið.
Það var pííínu fyndið og Dísa fékk nærri því hjartaáfall.
En þetta var líka hin skemmtilegasta bílferð verð ég að segja og það fannst okkur öllum held ég.

Eeeftir það sko ... fórum við aftur í bílinn hans Adda og rúntuðum eins
og áður, náðum í Thelmu í hafnarfjörðinn... dísess, nei ég man það bara
ekki. Allavega um þetta leyti var kl. orðin eitthvað margt og við
hittum Thelmu og Ásta náði í bjórinn sinn heim til sín, eftir það urðu
hlutirnir athyglisverðir.
En þó ekkert sem skal endurtekið hér sökum meiðyrðamála sem gætu komið upp af því.

Að sjálfsögðu .. ! Að sjálfsögðu var kíkt í heimsókn til Hönnu Katrínar
sem var heima hjá sér hress með southern comfort og sprite í glasi.
Þær voru þar þrjár vinkonurnar á fylleríi áður en átti að leggja af stað niður í bæ.
Ég tók það verkefni að mér að markvisst klára úr glasinu hennar Hönnu
svo hún fengi sér örugglega meira og yrði ennþá skrautlegri en þegar
hún er edrú.
Það var yndislegt að hitta þig Hanna mín og við skulum endilega ekki láta svona langt líða á milli næst. ;*
Þetta blogg er búið að fylla ágætlega uppí þá klst sem mér átti annars
eftir að leiðast í þangað til ég færi í næsta tíma og ætla ég að hætta
núna upptalningu á atburðum um helgina og öðru.

Er ég les yfir þetta þá virðist ekki mikið hafa gerst, gleymdi jú að
minnast á að við ætluðum í keilu og sáum þar mann sem virtist éta járn
með sterum í morgunmat, hann var allavega harður nagli þegar hann
stoppaði hurðina með hendinni ...
Fílinn Horton vantaði líka en það er ekki magnið af góðum stundum sem
gildir heldur gæðin og tel ég þetta hafa verið helgi í hæsta gæðaflokki
á alla vegu. ;*
Ég ætla núna að drífa mig í tíma jafnvel þó bókvitið verði ekki í askana látið.
Við sjáumst þá bara

Baddi